Drengurinn, sem heitir Dante, fór út að viðra hund um klukkan 17 í gær en skilaði sér ekki aftur heim. Sænska ríkisútvarpið segir að hann hafi verið í blárri úlpu, með húfu og í svörtum skóm með endurskinsröndum á. Hann er ljóshærður og um 140 sm á hæð.
Um 1.000 manns hafa tekið þátt í leitinni. Þyrlur hafa verið notaðar sem og hundar en án árangurs. Ekkert hefur fundist sem getur gefið vísbendingu um hvar hann er. Hundurinn fannst um klukkan 23 í gærkvöldi.