Lögreglunni barst tilkynning um málið klukkan 01.44 í nótt. Ungi maðurinn var fluttur á sjúkrahús í einkabíl og var bíllinn tekinn til rannsóknar af lögreglunni. Lögreglunni tókst síðar í nótt að finna vettvanginn þar sem skotárásin var gerð og fór ítarleg rannsókn fram þar.