fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Pressan

Manstu eftir Ruth gömlu sem var send margbrotin heim af sjúkrahúsinu? Nú er hún dáin

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 3. desember 2018 05:25

Ruth á dvalarheimilinu. Mynd/Jean Skarby/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku skýrði DV frá máli Ruth Jessen, 90 ára, sem var lögð inn á sjúkrahús vikunni áður vegna magaverkja. Hún var síðan útskrifuð næsta dag þrátt fyrir að hafa dottið fram úr sjúkrarúminu með þeim afleiðingum að hún beinbrotnaði og marðist illa. Nú er Ruth dáin.

Ekstra Bladet skýrir frá þessu. Blaðið hefur eftir Jean Skarby, sonardóttur Ruth, að því miður hafi hún haft rétt fyrir sér þegar hún sagði nýlega í viðtali við Ekstra Bladet að hún óttaðist að amma hennar myndi ekki lifa til jóla vegna áverkanna.

Starfsfólk á Hvidovre sjúkrahúsinu gleymdi að setja hliðarslá á rúmi Ruth upp og því datt hún út úr rúminu og endaði á gólfinu en fallið var um einn metri því einnig hafði gleymst að lækka rúmið í hefbundna svefnhæð sem er 60 sm.

Ruth kinnbeinsbrotnaði, brákaði höfuðkúpuna og úlnlið og fór úr axlarlið auk þess sem það brotnaði upp úr mjöðm hennar.

Jean Skarby sagði í samtali við Ekstra Bladet að hún væri vel meðvituð um að amma hennar hafi verið orðin gömul kona en sé þess fullviss að það hafi verið fallið út úr rúminu sem varð henni að bana. Hún segist ætla að fylgja málinu eftir til enda og krefjast þess að amma hennar verði krufin til að dánarorsökin liggi ljós fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Telja sig hafa fundið skýringuna á dularfullum snúningi Betelgás

Telja sig hafa fundið skýringuna á dularfullum snúningi Betelgás
Pressan
Fyrir 3 dögum

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hrútur varð hjónum að bana – Nágrönnum mjög brugðið

Hrútur varð hjónum að bana – Nágrönnum mjög brugðið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ert með ofnæmi fyrir hundum? Þá gætirðu líka verið með lítt þekkt kynlífsofnæmi

Ert með ofnæmi fyrir hundum? Þá gætirðu líka verið með lítt þekkt kynlífsofnæmi