fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Maura Murray hvarf á dularfullan hátt fyrir 15 árum: Nýjar upplýsingar komnar fram – Hvað er undir gólfinu?

Ritstjórn Pressunnar
Laugardaginn 9. febrúar 2019 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimmtán árum eftir að hin 21 árs gamla Maura Murray hvarf sporlaust vonast faðir hennar til þess að nýjar upplýsingar sem nú eru komnar fram muni varpa ljósi á málið.

Þann 9. febrúar árið 2004 sendi Maura, sem þá var 21 árs hjúkrunarfræðinemi í New Hampshire í Bandaríkjunum, kennara sínum tölvupóst og sagði honum að hún myndi ekki í skólann næstu daga. Það hefði orðið dauðsfall í fjölskyldunni og hún þyrfti á fríi að halda.

Það var ekki fyrr en farið var að grennslast fyrir um Mauru að kennarinn komst að því að ekkert dauðsfall hefði orðið í fjölskyldunni. Maura sást síðast þennan örlagaríka dag í febrúar 2004.

Eins og jörðin hafi gleypt hana

Þegar farið var að skoða málið kom í ljós að Maura hafði tekið 300 dollara út af bankareikningi sínum fyrr þennan dag. Lögreglan fékk það staðfest að hún hafði misst stjórn á bifreið sinni í hálku í skarpri beygju skammt frá Woodsville í New Hampshire. Vegfarandi stöðvaði bifreið sína og bauð fram aðstoð en Maura tjáði honum að allt yrði í lagi. Hjálp væri á leiðinni og hún væri ómeidd eftir óhappið. Maðurinn ók því burt en hringdi engu að síður á lögreglu.

Sjö til tíu mínútum síðar, þegar lögregla kom á vettvang, var Maura hins vegar á bak og burt. Hún var horfin, sporlaust í orðsins fyllstu merkingu. Engin fótspor fundust í snjónum við bifreiðina og sporhundar þefuðu í kringum bílinn en komust ekki á sporið. Þyrla, sem búin var hitamyndavél, var kölluð út en hvergi fannst Maura.

Lét sig ekki hverfa af sjálfsdáðum

Í fimmtán ár hefur fjölskylda Mauru leitað svara um afdrif þessarar ungu og efnilegu stúlku sem aldrei var til neinna vandræða.

Í viðtali við Boston Globe fyrir tveimur árum sagði Fred Murray, faðir Mauru, að nokkuð ljóst væri að einhver hefði rænt dóttur hans. Fred og Maura höfðu borðað saman laugardagskvöldið 7. febrúar, tveimur dögum áður en hún hvarf. Hann tók ekki eftir neinu óeðlilegu í fasi dóttur sinnar og útilokar að hún hafi látið sig hverfa af sjálfsdáðum. Rannsókn á tölvu hennar leiddi í ljós að áður en hún steig upp í bíl sinn að morgni mánudags hefði hún leitað eftir því hver besta leiðin væri til Bershire í Vermont. Fjölskylda hennar veit ekki hver tilgangur ferðarinnar var.

Bróðir hennar sagði í sama viðtali við Boston Globe að svo virðist vera sem eitthvað hafi komið systur sinni í uppnám enda hafi hún ekki látið neinn vita að hún ætlaði til Vermont. „Það er svo margt sem hefur getað gerst. Líklega er skýringin samt einföld, á þá leið að einhver hafi numið hana á brott.“

Hvað er undir gólfinu?

Í nýrri umfjöllun um málið segir Butch Atwood, vegfarandinn sem kom að Mauru eftir óhappið þennan örlagaríka dag, að hún hafi virst vera í svolitlu uppnámi. „Ég sá ekkert blóð á andlitinu á henni en tjáði henni að ég myndi hringja í lögregluna.“ Sem fyrr segir var Maura á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang.

Í samtali við WMUR-fréttastofuna segir Fred, faðir Mauru, að leitarhundar hafi á dögunum eFax uppi eitthvað grunsamlegt undir gólfi húss skammt frá staðnum þar sem hún sást síðast. Umræddir hundar eru sérþjálfaðir til leitar að látnum einstaklingum. Þá hafi sérhæfð tæki gefið til kynna að hugsanlega sé eitthvað undir gólfinu.

Aðstoðarsaksóknari í málinu segir að leitarhundar hafi leitað á þessu svæði á sínum tíma en ekki fundið neitt athugavert. Næstu skref hafa ekki verið ákveðin í málinu og þá kemur ekki fram í fréttum bandarískra fjölmiðla hvort einhver liggi undir grun um aðild að hvarfi Mauru. Líkur eru þó á því að lögregla muni afla sér heimildar til að leita undir gólfinu. Sjálfur segist Fred hæfilega vongóður um að dóttir hans komi í leitirnar, lífs eða liðin. „Það eina sem ég vil er að dóttir mín fái útför.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?