Að minnsta kosti 922 hafa látið lífið í mislingafaraldri sem nú gengur yfir Madagaskar. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni eru meirihluti látinna börn.
Frá því að mislingafaraldurinn hófst í september hafa fleiri en 66 þúsund íbúar eyjunnar smitast af sjúkdómnum.
Með bólusetningum er auðvelt að fyrirbyggja sjúkdóminn og hefur alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafið átak ásamt yfirvöldum Madagaskar til að bólusetja yfir 6 milljónir barna á eyjunni.
Einnig er vonast til að fyrirbyggja frekari smit með fræðslu þar sem áhersla er lögð á mikilvægi þess að bólusetja börn og reynt að berjast gegn bólusetningar hræðslu.
Í skýrslu sem gefin var út í síðustu viku segir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin að engin fordæmi séu fyrir slíkum faraldi og að ástæðu hans megi rekja til þess að lítil áhersla virðist hafa verið lögð á að börn séu bólusett í reglubundnum bólusetningum.
Í skýrslunni er greint frá 300 dauðsföllum og 53 þúsund smitum.
Á árinu 2018 voru 229.000 tilkynnt smit af mislingum í heiminum sem er tvöfalt meira heldur en árin á undan. Þessar tölur eru þó aðeins bráðabirgðaniðurstöður og er búist við að rauntölur séu mun hærri.
Á Madagaskar búa um 25 milljónir manna og samkvæmt Sameinuðu Þjóðunum er þjóðin ein sú fátækasta í heiminum.