Fyrrverandi yfirmaður alríkislögreglu bandaríkjanna, FBI, Andrew McCabe greindi frá því i vikunni að það hefði verið til umræður að nýta heimild stjórnarskrár bandaríkjanna til að leysa Donald Trump, Bandaríkjaforseta, frá störfum í kjölfar þess að hann rak framkvæmdarstjóra FBI, James Comey í maí 2017.
McCabe sagði miðlinum CBS að dómsmálaráðuneytið hafi fundað og rætt um möguleika þess að fá varaforsetann og meirihluta ráðherra til að greiða atkvæði um að setja Trump af.
Bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá því að tveir lögmenn FBI, hið minnsta, hafi staðfest að slíkt hafi staðið til, með vitnisburði sem þeir gáfu fyrir þingnefnd. Ein þeirra er Sally Moyer, sem starfaði áður fyrir FBI, sem gaf staðfestingu á þessu í vitnisburði sínum sem tekinn var fyrir luktum dyrum en fjölmiðlar hafa fengið eftirrit af.
Í 25. viðauka við Bandarísku stjórnarskránna má finna heimild til að leysa sitjandi forseta frá embætti ef varaforseti og meirihluti ríkisstjórnarinnar lýsa því yfir að þeim sé ófært að framfylgja embættisverkum sínum undir forsetanum
Rod Rosenstein, ríkissaksóknari, hefur neitað því að hafa tekið þátt í slíkum áformum.
Hann hefur einnig neitað því að hann bjóðast til að fara á fund við forsetann með hlerunarbúnað til að freista þess að fá sönnun fyrir saknæmri háttsemi forsetans.
„Líkt og ríkissaksóknarinn hefur áður sagt og með stöð í hans eigin persónulegu samskiptum við forsetann, var enginn grundvöllur fyrir beitingu 25. viðaukans. Hann var jafnframt í engri stöðu til að beita honum, segir í yfirlýsingu frá dómsmálaráðuneytinu.
Bæði Baker og Moyer hafa borið vitum um hlerunar-tillögu Rosensteins fyrir þingnefndinni,
„Ég tók þessari tillögu alvarlega því minn skilningur var sá að hún væri sett fram í alvöru,“ sagði Baker í skýrslu sinni.
„Þetta var enginn tími fyrir brandara. Þetta var frekar myrkur tími.“
„Það sem ég man eftir að hafi verið sagt er að ríkissaksóknarinn hefði þegar aflað stuðnings tveggja meðlima ríkisstjórnarinnar sem voru tilbúnir að leggjast með honum í þessa vegferð.“
Talskona Trump, Sarah Sanders, hefur áður vísað því á bug að til hafi staðið að beita 25 viðaukanum. Gerði hún það með því að ráðast að McCabe og kalla hann algjöra vanvirðingu við stétt sína sem hefði verið rekinn vegna sjálfþjónandi og eyðileggjandi stefnu sem hann hefði tekið þegar hann hóf rannsókn á Trump.