Allir um borð í farþegaflugvél Ethiopean Airlines létust þegar Boeing 7373-flugvél flugfélagsins brotlenti skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í Addis Ababa í Eþíópíu í morgun. Um borð voru 149 farþegar og átta manna áhöfn. Frá þessu greinir fréttavefur Reuters.
Vélin var á leið frá Eþíópíu til Nairobi í Kenía og brotlenti vélin þegar hún var komin 60 kílómetra frá flugvellinum í Addis Ababa. Farþegarnir voru frá 33 löndum, að sögn Reuters. Flugvélin sem um ræðir var af gerðinni Boeing 737 MAX 8. Um er að ræða vél sömu tegundar og brotlenti í Indónesíu í október síðastliðnum með þeim afleiðingum að 189 létust.