Dómstóll í Þýskalandi hefur dæmt 57 ára karlmann, Klaus O., í lífstíðarfangelsi fyrir að eitra fyrir samstarfsfélögunum sínum. Dómurinn féll í Bielefeld í Þýskalandi en maðurinn starfaði hjá fyrirtæki í bænum Schloss Holte-Stukenbrock.
Svo virðist vera sem brot mannsins hafi verið þaulskipulögð og stóðu þau yfir í nokkur ár. Klaus var dæmdur fyrir að setja eitur í mat samstarfsfélaga sinna; hann setti til dæmis kvikasilfur, blý og kadmíum í samlokur.
Afleiðingarnar voru hrikalegar; 23 ára samstarfsfélagi Klaus féll í dá og hlaut varanlegan heilaskaða. Um var að ræða starfsnema en sá hafði innbyrt kvikasilfur. Tveir aðrir samstarfsfélagar hans hlutu varanlegan nýrnaskaða.
Klaus var handtekinn í maí síðastliðnum þegar hann sást á eftirlitsmyndavélum koma óþekktu efni fyrir í mat samstarfsfélaga sinna. Við húsleit á heimili hans fundust allskonar hættuleg efni.
Saksóknarar vita ekki með vissu hvers vegna Klaus gerði þetta. Sjálfur vildi hann ekki tjá sig um málið fyrir dómi. Lífstíðarfangelsi í Þýskalandi þýðir yfirleitt 15 ár bak við lás og slá en dómari mat það svo að Klaus yrði áfram í fangelsi að þessum 15 árum liðnum, allt í þágu almannahagsmuna.