Íþróttir eru mishættulegar eins og gengur og gerist. Í flestum þeirra gilda þó margar reglur sem eiga einmitt að tryggja öryggi þátttakenda. Í Bretlandi er þó ein íþróttagrein, ef íþrótt skyldi kalla, sem sameinar í raun allt það versta í íþróttum.
Atherstone Ball Game er kappleikur sem fer fram einu sinni á ári í bænum Atherstone í Warwickshire á Englandi. Þar koma saman í boltaleik um 900 einstaklingar, að mestu leyti ungir karlar. Afar fáar reglur gilda í leiknum eins og kannski sést á myndbandinu hér neðst í fréttinni.
Reglurnar eru raunar aðeins tvær; ekki má drepa neinn og þá verður leikurinn að fara fram á Long Street sem er gata í miðbæ Atherstone.
Kappleikurinn fer fram á sprengidag ár hvert og er hann byggður á kappleik sem fram fór á svæðinu árið 1199 á milli íbúa Leicestershire og Warwickshire. Þá kepptu menn um gull sem búið var að koma fyrir inni í sérútbúnum bolta. Leikurinn er flautaður á klukkan þrjú og endar hann klukkan fimm síðdegis. Sá vinnur sem hefur boltann í höndunum þegar leikurinn er blásinn af.
Breska blaðið Mirror greinir frá því að leikurinn síðastliðinn þriðjudag hafi ekki farið fram áfallalaust. Einn þátttakandi er sagður hafa misst eyra og aðrir blóðguðust þó nokkuð í átökunum. Ekki er óalgengt að menn láti hnefana tala og skalli jafnvel hvorn annan.
Sigurvegarinn að þessu sinni var hinn 39 ára gamli Jonathan Slesser sem var mjög stoltur af sigrinum þegar blaðamaður Mirror náði tali af honum. Slesser þykir nokkuð harður í horn að taka og var þetta fjórði sigur hans í keppninni. Menn geta keppt í liðum eða sem einstaklingar en Slesser þessi er með nokkra félaga með sér sem verja hann fyrir ágangi annarra keppenda.