fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Lögregla situr um hús: Talið að byssumaðurinn sé inni

Ritstjórn Pressunnar
Mánudaginn 18. mars 2019 13:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Utrecht hefur umkringt hús í borginni en grunur leikur á að maðurinn sem skaut á vegfarendur þar í borg í morgun sé þar inni. Staðfest er að einn er látinn og nokkrir særðir eftir árásina. Líklega var um hryðjuverk að ræða.

Ekki liggur fyrir hvort byssumaðurinn hafi verið einn á ferð eða hvort fleiri hafi skotið á fólk. Hann sást aka frá vettvangi í rauðri bifreið af gerðinni Renault Clio, en bifreiðin fannst mannlaus skömmu síðar.

Þungvopnaðir liðsmenn sérsveitarinnar sitja um íbúðabyggingu sem er nokkur hundruð metrum frá staðnum þar sem árásin var framin. Talið er að byssumaðurinn sé þar inni sem fyrr segir.

Í hádeginu hækkuðu lögregluyfirvöld í Hollandi viðbúnaðarstig sitt vegna hryðjuverkaógnar í hæsta stig. Þetta á við um Utrecht og svæðið í nágrenni við borgina en ekki önnur svæði í Hollandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?