Börn eiga það til að vera býsna vanaföst og mörg eiga það til að bregðast illa við þegar foreldrar breyta útliti sínu á einhvern hátt, til dæmis með því að fara í klippingu.
Átta mánaða piltur, Mason Carter Harris, var ekki beint ánægður að sjá pabba sinn á dögunum eftir að hann fór í klippingu. Pabbinn, Greg Harris, hafði skartað flottum dreddum (e. dreadlocks) en ákvað að láta klippa þá af sér. Mason litli var ekki beint ánægður með þessa ákvörðun pabba síns, eins og meðfylgjandi myndband ber með sér.