Bresk kona fannst látin á hótelherbergi í Sviss eftir að kynlífsleikur fór úrskeiðis, eða svo segir að minnsta kosti unnusti hennar sem hefur verið handtekinn vegna málsins.
Anna Florence Reed fannst snemma morguns þriðjudag á baðherbergisgólfi hótels þar sem hún dvaldist í fríi með unnusta sínum. Aðrir gestir hótelsins greindu frá því að skömmu fyrr hafi öskur heyrst úr herbergi Reed.
Unnusti Reed kom í miklu uppnámi í móttöku hótelsins og sagði að kærastan hans væri veik og þyrfti aðstoð. Móttökuritarinn las það úr fasi hans að eitthvað alvarlegt væri á seiði svo hún hringdi umsvifalaust á neyðarteymi.
Heimildarmaður sagði: „Þau höfðu innritað sig yfir helgina. Þeim var úthlutað herbergi númer 501 og allt virtist með felldu.“
„Þeir reyndu endurlífgun en það var þýðingarlaust. Hún var dáin. Sjúkraliðarnir hringdu þá á lögregluna. Dánarorsökin var ekki augljós.“
Þegar neyðarteymi ruddist inn í herbergi Reed var hún án lífsmarks í kjölfarið var hún úrskurðuð látin. Kærastinn var í kjölfarið yfirheyrður af lögreglu. Við yfirheyrslu hélt hann því fram að hún hefði dáið vegna kynlífsleiks og eftirað krufning leiddi i ljós að banamein Reed var köfnun var kærastinn handtekinn. Búist er við því að hann verði ákærður fyrir manndráp.