Aftonbladet hefur eftir nágranna að hann „hafi aldrei heyrt svona hátt hljóð“ eins og þegar sprengjan sprakk.
Lögreglunni barst fjöldi tilkynninga um sprenginguna upp úr klukkan tvö í nótt. Lögreglan girti stórt svæði af og sérfræðingar hennar hafa unnið að vettvangsrannsókn í alla nótt.
Talsmaður lögreglunnar sagði að stúlkan hafi ekki slasast lífshættulega. Gluggi, fyrir ofan rúm hennar, brotnaði yfir hana í sprengingunni. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.