Fyrstu niðurstöður rannsókna á hryðjuverkunum á Sri Lanka á páskadag sýna að um hefnd var að ræða fyrir árásir á moskur múslima í Christchurch á Nýja-Sjálandi þann 15. mars. Þá skaut öfgasinnaður hvítur þjóðernissinni, Ástrali, 50 manns til bana. Ruwan Wijewardene, varavarnarmálaráðherra Sri Lanka, skýrði frá þessu á þingi landsins í morgun.
Staðfest hefur verið að rúmlega 300 manns létust í árásunum á Sri Lanka og rúmlega 500 særðust. Fjöldaútfarir hófust í dag. 24 hafa verið handteknir vegna árásanna.