Rannsóknarlögreglumenn sem hafa unnið að því að finna mannræningja Madeleine McCann eru með nýjan einstakling undir grun. Þetta segja portúgalskir fjölmiðlar en nú eru 12 ár liðin frá þessu óhugnanlega mannshvarfi.
Hin þriggja ára Madeleine McCann var í fjölskylduferðalagi á Praia da Luz í Portúgal árið 2007. Madeleine hvarf þegar foreldrar hennar fóru út að borða og skildu hana eftir í íbúð þar sem fjölskyldan hélt sér á meðan fríinu stóð.
Eftir að hafa fengið vísbendingar frá Scotland Yard á lögreglan í Portúgal að hafa verið að skoða ákveðinn erlendan barnaníðing sem var staddur í Portúgal þegar Madeleine hvarf.
Rannsakendur efast verulega um að Madeleine sé enn á lífi þó þeir séu mögulega skrefi nær sannleikanum. Portúgalskir miðlar segja að sá grunaði hafi áður komist í kast við lögin í Portúgal.
Foreldrar Madeleine, Kate og Gerry sendu skilaboð fyrr í vikunni á vefsíðu sem er tileinkuð leitinni að dóttur þeirra. „Það er komið að þessum tíma árs aftur, eins mikið og við vildum geta spólað fram yfir fyrstu vikurnar í maí, þá er ekkert hægt að gera.“
„Þessir mánuðir og ár hafa liðið hjá mjög hratt, Madeleine verður sextán ára seinna í mánuðinum. Það er ómögulegt að lýsa því hvernig það lætur okkur líða. Þó finnum við fyrir hughreystingu í því að vita að málið er enn þá í rannsókn,“ bættu foreldrar Madeleine við sem segjast aldrei ætla að hætta að leita að dóttur sinni.
Umdeild heimildarmynd frá Netflix varðandi málið birtist fyrr í mánuðinum. Myndin varð til þess að Kate og Gerry fengu fjölda hatursfullra skilaboða en þau neituðu að taka þátt í gerð myndarinnar, þau sögðu myndina mögulega geta hindrað rannsókn málsins.