Maðurinn var handtekinn í lok júní á síðasta ári en þá fékk lögreglan fyrstu upplýsingarnar um brotin gegn litlu stúlkunni. Í kjölfar þeirra upplýsinga ræddi lögreglan við stúlkuna og foreldra hennar og komst þá skriður á málið.
Hinn ákærði er 35 ára flutningabílstjóri frá litlum bæ nærri Struer. Hann var handtekinn í ágúst 2016 vegna rannsóknar á hvarfi Emilie Meng en var síðan sleppt úr haldi þar sem lögreglan taldi sig ekki hafa nægileg gögn til að tengja hann við hvarf hennar og það sem síðar reyndist vera morð. Hann liggur þó enn undir grun í því máli.
Saksóknari mun væntanlega krefjast þess að maðurinn verði dæmdur til ótímabundinnar vistunnar í fangelsi eða réttargeðdeild en það er þyngsta mögulega refsing í Danmörku auk ævilangs fangelsis.