Að vonum hringdi hún strax í lögregluna og tilkynnti um bílstuld. Þegar lögreglan kom á staðinn var hún hins vegar fljót að leysa málið en ekki var allt sem sýndist í því. Þetta kemur fram í tísti frá lögreglunni.
Lögreglumenn fundu bílinn fljótlega inni á milli nokkurra trjá á bílastæðinu. Bíllinn hafði einfaldlega runnið þangað því konan hafði gleymt að setja hann í handbremsu.