Japanskur karlmaður var úrskurðaður látinn í Mexíkó á dögunum eftir að hafa veikst hastarlega um borð í flugvél. Vélin sem um ræðir var á leið frá Kólumbíu til Japans.
Við krufningu á líki mannsins, sem var 42 ára, kom í ljós að hann var með 246 poka af kókaíni í maganum og meltingarfærunum. Svo virðist vera sem poki hafi byrjað að leka með fyrrgreindum afleiðingum.
Maðurinn var farþegi um borð í flugvél Aeromexico en vélin millilenti í Mexíkóborg á ferð sinni. Skömmu eftir að vélin hélt af stað frá Mexíkóborg var henni lent aftur eftir að farþeginn fékk flog. Hann var úrskurðaður látinn af læknum sem komu um borð í vélina til að hlúa að honum, að því er segir í frétt BBC.