Ríkisstjóri Alabama-ríkis í Bandaríkjunum, Kay Ivey, hefur undirritað umdeilt lagafrumvarp þar sem dæmdum barnaníðingum er gert skylt að undirgangast vönun með lyfjameðferð áður, og eftir að þeir fara úr fangelsi. Með undirrituninni hefur frumvarpið því orðið að lögum.
Sjá einnig:
Lögin taka til þeirra sem brotið hafa kynferðislega gegn börnum, 13 ára og yngri, og eru við það að ljúka afplánun. Mánuði áður en þeim er sleppt munu þeir nú þurfa að hefja vönun með lyfjameðferð og halda henni áfram eftir að þeir koma úr fangelsi þar til dómari hefur úrskurðað að lyfjameðferðar sé ekki lengur þörf.
Vönun með lyfjameðferð felst í því að einstaklingar, í þessu tilviki haldnir barnagirnd, fá lyf í töfluformi eða með sprautu, sem bæla kynhvöt þeirra og gera getulausa. Þessum áhrifum er svo viðhaldið með áframhaldandi meðferð, en um leið og meðferð er hætt snýr náttúra einstaklinganna aftur. Hafni brotamenn því að undirgangast meðferðina, verður þeim meinað að fara úr fangelsinu.
Þingmaður Repúblíkanaflokksins, Steve Hurst, var fyrsti flutningsmaður umdeilda frumvarpsins og segir að rökin að baki því séu þau að refsingin fyrir barnaníð ætti að endurspegla glæpinn. Steve hefur hins vegar verið gagnrýndur og frumvarpið sagt ómannúðlegt. Sem svar við þeirri gagnrýni spyr Steve hvort sé verra: að láta níðinga undirgangast vönun með lyfjum, eða að brjóta gegn saklausu barni sem getur ekki varið sig eða flúið. Steve vonast einnig til að lögin muni fá menn til að hugsa sig um tvisvar áður en þeir brjóta gegn börnum og leiða til þess að færri brjóti af sér með þeim hætti.
Lögmaður í Alabama, Raymond Johnson, er harður andstæðingur laganna og segir að fyrirliggjandi refsing hafi verið fullnægjandi, engin þörf hafi verið á refsiþyngingu með þessum hætti. Hann hyggst láta reyna á stjórnskipulegt gildi laganna sem hann segir óeðlilega og grimma refsingu fyrir einstaklinga sem þegar hafi tekið út refsingu sína.