fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Pressan

Óþefur breiddist út um húsið – Síðan uppgötvaði dóttirin hið skelfilega leyndarmál

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 18. júní 2019 07:00

Joanne með bróður sínum og móður.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joanne Lee var aðeins 15 ára þegar hún kom að móður sinni, Bernadette Quirk,  að stunda kynlíf með 17 ára unnusta hennar, Mark. Joanne og Mark höfðu setið að drykkju um kvöldið með Bernadette og fleirum. Joanne hafði farið snemma í rúmið en Mark varð eftir niðri hjá móður hennar. Þegar Joanne vaknaði seint um nóttina fór hún að athuga hvar Mark væri. Þegar hún opnaði stofudyrnar sá hún móður sína og Mark nakin í sófanum að stunda kynlíf.

„Þetta var hræðilegt, ég lokaði dyrunum hljóðlega og fór aftur upp. Mér fannst ég hafa verið algjörlega svikin.“

Hún ræddi þetta síðan við Mark og sambandi þeirra lauk. En þau byrjuðu aftur saman og ekki leið á löngu þar til Joanne varð barnshafandi 15 ára. Hún eignaðist son sem lifði aðeins í 30 mínútur segir í umfjöllun Mirror.

Þar kemur fram að Joanne sé sannfærð um að Mark hafi haldið áfram að stunda kynlíf með móður hennar næstu árin

„En hún var mamma mín og ég vildi að hún væri til staðar fyrir mig.“

Joanne hafði þurft að hugsa mikið um yngri systkin sín allt frá unga aldri en þau voru rúmlega áratug yngri en hún. Bernadett barðist við áfengissýki og líf hennar var í mikilli óreiðu. Þegar Joanne varð eldri áttaði hún sig á að móðir hennar var hraðlygin og eiginlega lygasjúk.

Joanne gerði sitt besta til að halda heimilinu hreinu en þegar hún flutti að heiman fór allt úr böndunum. Hundaskítur, maðkar og stórar hrúgur af rusli voru út um allt hús.

1998, þegar Joanne var 27 ára og systir hennar 16, fór þær að gruna að móðir þeirra, sem var þá 42 ára, væri barnshafandi. Magi hennar stækkaði og í samkvæmi sagði hún einhverjum að hún ætti von á barni. Eitt sinn þegar systirin, Cath, heimsótti móður þeirra fann hún ógeðslega lykt koma frá svefnherbergi hennar. Hún ákvað að kanna málið á meðan Bernadette fór að versla. Þegar hún opnaði svefnherbergisskápinn mætti hryllileg rotnunarlykt henni. Hún virtist koma úr rauðri plasttunnu. Mikið var af skordýrum á og við tunnuna. Cath opnaði tunnuna og sá fullt af ilmefnum og ruslapokum. Þegar hún setti höndina ofan í tunnuna taldi hún sig finna barnshöfuð. Hún hljóp út í örvæntingu og hringdi í Joanne.

Cath og Bernadette

Joanne fór heim til móður sinnar og ræddi þetta við móður sína sem játaði að hafa eignast barn tveimur vikum áður. Hún sagði að barnið hefði fæðst andvana en Joanne var ekki sannfærð um það og segist hafa vitað hvað móðir hennar var fær um.

Joanne féllst á að láta yfirvöld ekki vita af þessu og tók að sér að jarðsetja barnið, sem var stúlka, ásamt systur sinni. Þær jarðsettu hana þar sem amma þeirra var grafin.

Enn meiri hryllingur

2009, þegar Bernadette var 53 ára, tók hún of stóran skammt af lyfjum og endaði á sjúkrahúsi. Þegar Joanne fór heim til hennar að sækja föt fann hún rauðu ruslafötuna inni í fataskápnum. Þegar hún opnaði hana mætti sama sjón henni og hafði mætt Cath 11 árum áður. Núna lét hún lögregluna vita.

Lögreglan fann barnslík í tunnunni og tvö til viðbótar í poka bak við rúm Bernadette.

„Ég trúði þessu ekki.“

Sagði Joanne.

Niðurstöður réttarmeinafræðinga voru að börnin, sem öll voru stúlkubörn, hefðu fæðst seint á níunda áratugnum og að barnið sem Cath fann hafi verið það síðasta sem Bernadette eignaðist. Börnin áttu öll mismunandi feður. DNA rannsókn leiddi í ljós að Mark var faðir eins barnanna.

Bernadette var dæmd til tveggja ára samfélagsþjónustu en hlíft við fangelsi sem var að mati Joanne best þar sem það hafi verið um seinan að senda hana í fangelsi.

Bernadette lést í febrúar, 64 ára að aldri.

Joanne hefur skrifað bók um reynslu sína og segir skrifin hafa hjálpað sér í sorgarferlinu en segist oft hugsa til litlu systra sinna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Varpa fram athyglisverðri kenningu um hamfararigninguna í Dúbaí

Varpa fram athyglisverðri kenningu um hamfararigninguna í Dúbaí
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn
Pressan
Fyrir 3 dögum

6 ára stúlka bjargaði fjölskyldunni frá bruna – „Vaknaðu mamma“

6 ára stúlka bjargaði fjölskyldunni frá bruna – „Vaknaðu mamma“