fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Klikkaðar samsæriskenningar um bresku konungsfjölskylduna

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 6. júlí 2019 13:00

Fjölskyldan var mjög ósátt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samsæriskenningar hafa í gegnum tíðina vakið mikinn áhuga hjá fólki um allan heim, flestir hafa til dæmis heyrt kenningar um að John F. Kennedy hafi verið myrtur af bandarísku ríkisstjórninni og að menn hafi aldrei lent á tunglinu. Í áranna rás hafa komið fram margar samsæriskenningar um bresku konungsfjölskylduna, illa hefur gengið að sanna þessar kenningar, eins og oft vill vera með samsæriskenningar. Þrátt fyrir skort á sönnunum vekja kenningar þessar mikla athygli og það þarf ekki meira til en snögga leit á netinu til að finna flóknustu og undarlegustu kenningarnar um elstu kóngafjölskyldu í heimi. Við höfum tekið saman nokkrar af þessum samsæriskenningum.

Karlkyns staðgengill

Samsæriskenningarnar um bresku kóngafjölskylduna ná langt aftur. Ein þeirra fjallar um Elísabetu 1, sem var drottning á árunum 1558 til 1603. Hún er meðal annars þekkt fyrir langa valdatíð sína og var oft kölluð meydrottingin, þar sem hún gifti sig aldrei. Hún átti marga biðla á meðan hún var við völd, en neitaði alltaf að giftast. Hún sagðist þegar vera gift, hún væri gift konungsríkinu.

Margir töldu um tíma að ástæða þess að hún giftist aldrei hafi verið líffræðileg, hún hafi nefnilega verið karlmaður. Kenningin gekk út á það að Elísabet hafi látist í barnæsku og að barnfóstrur hennar hafi fundið dreng sem settur var í hlutverk Elísabetar. Enginn á að hafa fengið að vita af þessu ráðabruggi, ekki einu sinni konungurinn.

Síðar hefur komið í ljós að ástæðan fyrir þessari kenningu var að vegna leiðtogahæfileika hennar og gáfnafars hlyti hún að hafa verið karlmaður. Með yfirgnæfandi magni sannana hefur verið sýnt fram á að kenning þessi átti ekki við rök að styðjast og að hún hafi mismunað konum.

Brúðkaup með leyndum tilgangi

Núlifandi meðlimir kóngafjölskyldunnar hafa fengið sinn skerf af samsæriskenningum. Heimurinn fylgdist með þegar Harry prins gekk að eiga Meghan hertogaynju í maí árið 2018. Prinsinn, sem vakti oft mikla hneyklsan fólks á ungdómsárum sínum, var nú loksins að róast og var tilbúinn til að stofna fjölskyldu.

Parið eignaðist í maí á þessu ári sitt fyrsta barn, þegar sonur þeirra, Archie Harrison, kom í heiminn. Það lítur semsagt allt út fyrir að hjónin séu búin að ná tökum á hinu nýja lífi. En þó eru einhverjir sem velta því fyrir sér hvort hjónabandið sé byggt á lygum. Það eru nefnilega einhverjir sem halda því fram að hjónabandið sé hluti af stærra samsæri.

Þeir sem aðhyllast þessa kenningu segja að þetta sé hluti af áætlunum Breta til að ná aftur völdum í Bandaríkjunum. Þar sem sonur Harry og Meghan er bandarískur ríkisborgari getur hann orðið forseti Bandaríkjanna og verið á sama tíma í bresku erfðaröðinni. Þetta sé snilldarbragð Breta til að ná fram vilja sínum. Sá galli er þó á þessari kenningu að það dugir ekki að vera bandarískur ríkisborgari til að verða forseti, viðkomandi þarf að vera fædd/ur í Bandaríkjunum.

Meghan, Harry og Archie litli.

Óskilgetið barn

Kenningin um hjónaband Harry og Meghan er ein þeirra vægustu sem fram hafa komið, í gegnum tíðina hafa komið fram margar flóknari samæriskenningar um bresku konungsfjölskylduna.
Maður að nafni Robert Brown hefur áratugum saman haldið því fram að hann sé óskilgetinn sonur Margrétar prinsessu.

Prinsessan, sem var yngri systir Elísabetar drottningar, átti að hafa átt í leynilegu ástarsambandi við starfsmann kongungsfjölskyldunnar. Robert Brown heldur því fram að hann hafi fæðst inn í konungsfjölskylduna árið 1955 og hafi verið sendur í burtu eftir að ástarsambandinu lauk.

Brown er sagður hafa eytt miklum fjármunum í að sanna mál sitt, árið 2015 á hann að hafa reynt að fá málið tekið upp í hæstarétti. Það hefur ekki tekist enn og margir efast um mál hans.

Konungleg vampíra

Karl Bretaprins hefur líka fengið sinn skerf af samsæriskenningum. Ein kenninganna um Karl prins af Wales er afar sérstök. Þar er því haldið fram að hann sé vampíra, eða að minnsta kosti afkomandi vampíru. Samkvæmt kenningu þessari er hinn rúmlega sjötugi prins fjarskyldur ættingi Vlad III, hershöfðingja og fursta í furstadæminu Valakia, í núverandi Rúmeníu.

Þegar Bram Stoker skrifaði bók sína um vampíruna Dracula var fyrrnefndur fursti innblástur hans og þar með hafa samsæriskenningasmiðir fundið tengingu á milli prinsins og þessa fjarskylda ættingja.

Vampírur eiga að vera viðkvæmar fyrir sólarljósi, en það er eitthvað sem tengt hefur verið við Karl Bretaprins og konungsfjölskylduna. Purpuraveiki (e. porphyria) er nefnilega arfgengur sjúkdómur sem herjað hefur á bresku konungsfjölskylduna. Þeir sem þjást af þessum sjúkdómi eru haldnir ljósfælni og fá útbrot af völdum sólarljóss.

Karl Bretaprins. Mynd:Wikimedia Commons

Vangaveltur um staðgöngumæðrun

Vangaveltur hafa verið uppi um það hvort Kate hertogaynja hafi í raun gengið með sitt annað barn. Margir hafa haldið því fram að hertogaynjan hafi notast við staðgöngumóður. Ástæðan fyrir þessari tilteknu samæriskenningu er sú að hún hafi litið of vel út eftir fæðinguna til að hafa getað fætt sjálf. Er því einnig haldið fram að hertogaynjan hafi notað falskan óléttumaga meðan á meðgöngunni stóð.

Kate og Vilhjálmur ásamt börnunum sínum þremur.

Falskur afturendi

Yngri systir hertogaynjunnar, Pippa Middelton, hefur einnig fengið að kenna á samsæriskenningunum. Hún stal senunni við brúðkaup systur sinnar og Vilhjálms prins og beindist athyglin aðallega að afturenda hennar.

Hin 34 ára gamla Pippa leit nefnilega svo vel út í þröngum hvítum kjól þegar hún var á leið inn í kirkjuna. Því hefur verið haldið fram að bakhluti hennar hafi ekki verið ekta, þetta hafi verið sjónhverfing og að hún hafi nýtt tækifærið til að sýna heimsbyggðinni bakhlutann.

Umdeilt ástarsamband

Það gekk lengi orðrómur um það að Díana prinsessa hafi í raun átt Harry með elskhuga sínum, James Hewitt.

Díana viðurkenndi að hafa átt í ástarsambandi við Hewitt og að sambandið hafi varað í fimm ár. Breska þjóðin reiknaði það út að sambandið hafi hafist um það bil sem Díana varð ólétt að Harry.
Einnig hafa margir bent á það að Harry prins og James Hewitt séu sláandi líkir. Hewitt hefur alltaf neitað því að hann sé faðir Harry, hann neitar því ekki að þeir séu líkir en heldur því fram að Harry hafi verið farinn að ganga þegar ástasamband Hewitt og Díönu hófst.

Samkvæmt Hewitt hitti hann prinsessuna ekki fyrr en árið 1986, þegar Harry var tveggja ára gamall. Því hefur einnig verið haldið fram að gerð hafi verið DNA-rannsókn til að skera úr um hvort Karl Bretaprins sé í raun faðir hins rauðhærða Harry.

Díana og Karl á brúðkaupsdaginn.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug