fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Koddinn sem beðið hefur verið eftir – Þurfa ekki allir að eignast svona kodda?

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 6. júlí 2019 21:00

Er þetta ekki nauðsynleg eign á hverju heimili?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marga hefur eflaust dreymt um kodda eins og hér er fjallað um. Hann auðveldar fólki að liggja þétt saman í faðmlögum án þess að handleggurinn, sem er undir höfði hins aðilans, verði blóðlaus og tilfinningalaus.

Þessi bráðnauðsynlega uppfinning á rætur að rekja til Bandaríkjanna þar sem þessir koddar eru búnir til í höndum. Hann var hannaður sérstaklega til að leysa málið með blóðlausu handleggina. Því hefur fólk enga afsökun lengur fyrir að liggja ekki þétt saman og halda utan um hvort annað.

Mirror skýrir frá þessu. Fram kemur að meðal annars sé hægt að kaupa koddann í netverslun Amazon.

Hvernig koddaver ætli passi utan um hann?

En það er hægt að nota hann í meira en bara að bjarga handlegg frá blóðleysi þegar legið er þétt saman. Það er líka hægt að nota hann til að sofa á hliðinni eða bara liggja á hliðinni með höfuðið á koddanum á meðan horft er á sjónvarpið og kíkt í símann.

En þegar lögun koddans er skoðuð vaknar sú spurning eflaust hjá mörgum hvernig koddaver á að nota utan um hann. Því verður ekki svarað hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig