fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Pressan

Ótrúlegt hættuspil – Ók með dætur sínar á þakinu

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 15. júlí 2019 21:30

Dæturnar voru í þessari sundlaug. Mynd:Dixon, Illinois Police Department / Twitter.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á miðvikudag í síðustu viku stöðvaði lögreglan í Dixon í Illinois í Bandaríkjunum akstur 49 ára konu, Jennifer Janus Yeager. Ástæðan var að hún hafði sett tvær dætur sínar í uppblásna sundlaug sem var á þaki bílsins.

Jennifer hafði einfalda skýringu á þessu þegar lögreglumenn ræddu við hana. Hún var að þetta væri til að sundlaugin myndi ekki fjúka. Þetta kemur fram í Twitterfærslu lögreglunnar.

Það var árvökull borgari sem tilkynnti lögreglunni um akstur Jennifer með dæturnar á þakinu. Lögreglan stöðvaði akstur hennar á fjölförnum vegi. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að Jennifer hafi ekið með sundlaugina heim til vina sinna til að láta blása hana upp. Síðan hafi hún látið dæturnar sitja í tómri sundlauginni á heimleiðinni svo hún myndi ekki fjúka af þakinu. Dæturnar eru 8 og 16 ára.

Jennifer var kærð fyrir að stofna lífi dætra sinna í hættu og vítavert framferði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Átta ára fangelsi fyrir að stela bíl – 89 ára blind kona í framsætinu – Myndband

Átta ára fangelsi fyrir að stela bíl – 89 ára blind kona í framsætinu – Myndband
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ömurlegt að missa auga: „Ég er miður mín alla daga út af því“

Ömurlegt að missa auga: „Ég er miður mín alla daga út af því“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Önnur óhugnanleg hnífaárás í Sydney í morgun – Stunginn í beinni útsendingu

Önnur óhugnanleg hnífaárás í Sydney í morgun – Stunginn í beinni útsendingu
Pressan
Fyrir 3 dögum

55 fermetra sumarhús til sölu – Ásett verð er 220 milljónir – Sjáðu myndirnar

55 fermetra sumarhús til sölu – Ásett verð er 220 milljónir – Sjáðu myndirnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fimm ótrúleg mál – Mannránin sem gleymast aldrei

Fimm ótrúleg mál – Mannránin sem gleymast aldrei