fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Pressan

Hélt dóttur sinni fanginni í litlu herbergi í 25 ár – Fékk hvorki að fara í bað né nota klósettið

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 21. júlí 2019 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar lögreglumennirnir brutu upp dyrnar að herberginu á háloftinu í glæsilega einbýlishúsinu mætti þeim svo hræðilegur fnykur að þeir kúguðust. Herbergið var almyrkvað en annar lögreglumaðurinn þreifaði sig að glugganum, reif þykkar gardínurnar niður og opnaði gluggann til að lofta út. Um leið og birtan streymdi inn mætti þeim sjón sem fékk innyflin til að gera uppreisn. Allt var í rúst í herberginu, matur flaut um gólfið, rottur hlupu um á milli rotnandi matarleifa og þvags og saurs. Ofan á þessu voru hungraðir maðkar og bjöllur. En þetta var ekki það hræðilegasta sem lögreglumennirnir sáu. Í viðbjóðslega skítugu rúmi lá allsnakin kona og var hún bundin föst. Hún lá í eigin saur í bókstaflegri merkingu.

Hún pírði augun til að vernda þau fyrir dagsbirtunni sem hún hafði ekki séð í 25 ár. Hún reyndi um leið að hylja nakinn og magran líkamann með skítugu teppi. Konan, Blanche Monnier, var 52 ára þegar lögreglumennirnir frelsuðu hana úr þessari prísund þann 25. maí 1901. Þá hafði hún verið í herberginu í 25 ár, algjörlega einangruð frá umheiminum og aðeins fengið að hafa samband við móður sína og yngri bróður.

Í hræðilegu ásigkomulagi Þessi mynd var tekin af Blanche Monnier stuttu eftir að hún fannst bundin við rúmið. Mynd: Wikipedia Commons

Ástæðan fyrir innilokuninni var að hún hafði sem ung, fögur og dekruð yfirstéttarstúlka orðið yfir sig ástfangin af aðeins eldri manni árið 1876 en hann tilheyrði ekki yfirstéttinni. Þetta fannst stjórnsamri móður hennar, Louise Monnier, ekki viðeigandi og því batt hún dóttur sína fasta við rúmið uppi á háalofti, dró gardínurnar fyrir og læsti dyrunum og sagði við dóttur sína að þar skyldi hún dúsa þar til hún færi að vilja hennar og giftist manni úr sömu þjóðfélagsstétt og hún tilheyrði. En Blanche Monnier gaf sig aldrei.

Ekki er vitað hvaða hlutverk faðir hennar, Emile Monnier, lék í þessu öllu en hann var háttsettur og virtur stjórnandi við listaakademíuna í Poitiers í Frakklandi þar sem fjölskyldan bjó. Hann lést 1879 en eiginkona hans og sonur þeirra, Marcel Monnier, héldu Blanche innilokaðri og misþyrmdu allt þar til lögreglan frelsaði hana.

Nágrannar heyrðu í henni

Á fyrstu árunum í herberginu átti Blanche það til að öskra eins hátt og hún gat í örvæntingu sinni og heyrðu nágrannarnir í þessu fína hverfi oft öskrin. Móðir hennar sagði þeim að Blanche væri því miður orðin geðveik, en á þessum tíma var ekki óalgengt að geðveikir væru læstir inni og haldið fjarri samfélaginu. Í öll þau ár sem hún var bundin við rúmið fékk hún aðeins matarleifar af borði fjölskyldunnar og oft liðu margir dagar á milli máltíða. Hún hafði ekki aðgang að salerni og var aldrei þrifin. Þegar Blanche var vafin inn í teppi og ekið á sjúkrahús þennan maídag 1901 vó hún aðeins 23 kíló og var ófær um að tjá sig.

Nafnlaus ábending

Það var nafnlaust bréf, sem var sent til ríkissaksóknarans, sem varð til þess að lögreglan fór að athuga með Blanche. Í bréfinu kom fram að móðir Blanche hefði árum saman haldið henni fanginni. Sú kenning hefur notið töluverðrar hylli að það hafi verið bróðir Blanche, Marcel, sem skrifaði bréfið því hann hafi verið búinn að fá sig fullsaddan af meðferð móður sinnar á Blanche.
Þegar ríkissaksóknarinn afhenti lögreglunni bréfið átti hún erfitt með að trúa því þar sem Monnier-fjölskyldan var í efstu lögum samfélagsins og naut mikillar virðingar. En lögreglan ákvað nú samt sem áður að kanna málið og það varð Blanche til lífs.

Þótt ótrúlegt megi virðast náði Blanche sér að mestu líkamlega en andlega var hún svo illa farin að hún eyddi því sem hún átti eftir ólifað á geðsjúkrahúsi í París og þar lést hún í október 1913, 64 ára að aldri. Móðir hennar lést af völdum hjartaáfalls tveimur vikum eftir að lögreglan frelsaði Blanche úr prísundinni. Marcel, sem var þekktur lögmaður og fjölskyldufaðir, var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir sinn þátt í ofbeldinu. Hann áfrýjaði dómnum og var síðan sýknaður.

Ekki eina málið

En þetta er ekki eina málið þessarar tegundar sem vitað er um. Á síðustu árum hafa mörg álíka mál komið upp þar sem fólk hefur verið læst inni árum saman, vanrækt og beitt margvíslegu ofbeldi. Eitt nýjasta málið þessarar tegundar er frá Perris í Kaliforníu. Þar héldu hjónin David og Louise Turpin þrettán börnum sínum innilokuðum frá fæðingu. Elsta barnið var 29 ára þegar lögreglan batt enda á prísund systkinanna. Þetta er lengsta innilokunin af þessu tagi sem upp hefur komist um. Börnunum var haldið innilokuðum við hrikalegar aðstæður á heimilinu. Þau voru beitt miklu ofbeldi og misnotuð kynferðislega. Þau fengu í mesta lagi eina máltíð á dag og fengu aðeins að fara í bað einu sinni á ári. Hjónin voru í apríl dæmd í lífstíðarfangelsi. Upp um þau komst í janúar á síðasta ári þegar ein dóttir þeirra náði að flýja og setja sig í samband við lögregluna.

Í Evrópu er mál Josefs Fritzl í Austurríki eitt það þekktasta og hræðilegasta. Hann lokaði dóttur sína, Elisabeth, inni í tæp 25 ár og beitti hana kynferðislegu ofbeldi í allan þann tíma. Ofbeldið var kerfisbundið og margþætt og ekki hægt að lýsa þeim hryllingi sem Elisabeth gekk í gegnum á þessum tæpa aldarfjórðungi. Afbrigðileiki Fritzl kom strax í ljós 1967 þegar hann var sakfelldur fyrir að hafa nauðgað hjúkrunarfræðingi. Hann var einnig grunaður um aðra álíka nauðgun en ekki tókst að færa sönnur á hana. Hann beitti Elisabeth kynferðislegu ofbeldi frá því að hún var ellefu ára. Auk þess var hann margoft kærður fyrir að hafa berað kynfæri sín á almannafæri. Árið 1978 fékk hann þá hugmynd að gera breytingar á kjallaranum undir húsi fjölskyldunnar og fékk heimild til þess hjá bæjaryfirvöldum. Þar innréttaði hann leynilegt öryggisfangelsi með leynilegum inngangi. Nokkrum dögum eftir að Elisabeth varð átján ára bað hann hana um að aðstoða sig niðri í kjallaranum. Þegar þangað var komið deyfði hann hana, hlekkjaði með handjárnum við rúmið og yfirgaf herbergið. Þarna hófst tæplega 25 ára martröð hennar.

Fritzl og eiginkona hans tilkynntu um hvarf Elisabeth og leit hófst. Henni var þó fljótlega hætt þegar Fritzl sýndi lögreglunni bréf sem Elisabeth hafði skrifað. Í því fullvissaði hún lesendur um að hún hefði það gott og bað lögregluna um að hætta leitinni. Fritzl sagðist telja að hún hefði gengið til liðs við sértrúarsöfnuð og tók lögreglan þá skýringu gilda. Eiginkona hans hafði ekki hugmynd um að Elisabeth væri í kjallaranum.

Vakti óhug Mál Josefs Fritzl vakti mikinn óhug enda hræðilegt frá upphafi til enda. Mynd: Getty Images

Þar til Elisabeth losnaði úr prísundinni nauðgaði Fritzl henni, að eigin sögn, ekki sjaldnar en þrjú þúsund sinnum. Elisabeth eignaðist sjö börn og missti eitt fóstur. Eitt barnanna lést strax eftir fæðingu eða var myrt af Fritzl, það hefur aldrei fengist niðurstaða í það. Hann brenndi líkið í kamínu.

Hrikaleg aðkoma Lögreglumaðurinn Franz Polzer sýnir mynd af rýminu þar sem Elisabeth, dóttir Josefs Fritzl, var haldið. Mynd: Getty Images

Annað mál frá Austurríki

Í byrjun mars 1998 var Natascha Kampusch, 10 ára, á leið í skóla í Vínarborg í Austurríki þegar henni var rænt á götu úti af Wolfgang Priklopil. Hann fór með hana heim til sín í Strasshof, sem er aðeins utan við Vínarborg, og lokaði hana inni í herbergi sem hann hafði innréttað undir bílskúrnum.

Rænt 10 ára Natöschu Kampusch var rænt þegar hún var á leið í skólann. Mynd: Getty Images

Það liðu átta ár þar til Natascha losnaði úr prísundinni. Á þeim tíma beitti Wolfgang hana kynferðislegu ofbeldi og beitti oft á tíðum miklu og grófu ofbeldi. Þegar leið á fangavistina fór hann að taka hana upp í húsið þar sem hann kenndi henni og hún var látin þrífa og elda mat. Hún reyndi nokkrum sinnum að strjúka og vekja athygli nágranna en það leiddi alltaf af sér þungar, líkamlegar refsingar.

Þann 13. ágúst 2006 sagði Wolfgang henni að þrífa sendibílinn hans. Hún náði þá að stinga af og leita hjálpar. Þegar hún hafði bent á Wolfgang sem mannræningjann hófst mikil leit lögreglunnar að honum en áður en tókst að handtaka hann, kastaði hann sér fyrir járnbrautarlest og lét lífið.

Föst í prísund Hér má sjá rýmið sem Natasha þurfti að hírast í. Mynd: Getty Images

Natascha hefur margoft komið fram í fjölmiðlum eftir að hún losnaði úr prísundinni og sagt sögu sína. Hún var með eigin spjallþátt um hríð og 2010 gaf hún út ævisögu sína og 2016 gaf hún út bók sem nefnist „Frelsi í 10 ár“. En eftir það hefur lítið farið fyrir henni. Dánarbússtjóri Wolfgangs gaf Natöschu hús hans og hún á það enn og er þar stundum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég hef sofið hjá ungum og gömlum mönnum“ – „Það er mikill munur“

„Ég hef sofið hjá ungum og gömlum mönnum“ – „Það er mikill munur“
Pressan
Fyrir 2 dögum

55 fermetra sumarhús til sölu – Ásett verð er 220 milljónir – Sjáðu myndirnar

55 fermetra sumarhús til sölu – Ásett verð er 220 milljónir – Sjáðu myndirnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gervihnattarmyndir sýna að Xi Jinping er full alvara

Gervihnattarmyndir sýna að Xi Jinping er full alvara
Pressan
Fyrir 3 dögum

James Webb geimsjónaukinn nam ljós frá fjarlægri plánetu sem líkist jörðinni

James Webb geimsjónaukinn nam ljós frá fjarlægri plánetu sem líkist jörðinni