Þetta er mat samtaka breskra matvælaframleiðenda, The Food and Drink Federation. Boris Johnson og ríkisstjórn hans stefna að útgöngu úr ESB þann 31. október næstkomandi hvort sem samningar hafa náðst eða ekki. Ekki er að sjá að samningar séu í nánd því ESB hefur ekki í hyggju að setjast enn einu sinni að samningaborðinu með Bretum.
Matvælaframleiðendurnir segja að fólk muni ekki svelta en það verði skortur á ferskum matvælum og sumum sérvörum. Skorturinn á ferskum matvælum mun vara í vikur eða mánuði að mati samtakanna og verð mun einnig hækka.
Útganga úr ESB í lok október gerir ástandið enn verra því vegna loftslagsins á Bretlandseyjum þá er miklu minni ræktun á ávöxtum og grænmeti á þeim árstíma en að sumri til. Í byrjun nóvember er um 60 prósent af öllum matvælum, sem seld eru í Bretlandi, innflutt.
Stórmarkaðir ætla að fylla á birgðageymslur sínar fyrir Brexit en eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að fylla þær af ferskum matvælum.