fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Fyrir og eftir myndirnar af fimm ára dóttur hennar slá í gegn á netinu

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 26. ágúst 2019 06:00

Lucie Falconer fyrir og eftir fyrsta skóladaginn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndir sem Jillian Falconer, fjögurra barna móðir í Glasgow í Skotlandi, tók af fimm ára dóttur sinni, Lucie, áður en hún fór í skólann í fyrsta sinn og við heimkomuna hafa slegið í gegn á netinu. Á myndinni, sem var tekin fyrir fyrsta skóladaginn, virðist Lucie vera spennt og jafnvel aðeins taugaóstyrk, hún er vel greidd, með slaufu í hárinu og skólabúningurinn óaðfinnanlegur.

En nokkrum klukkustundum síðar er sagan allt önnur. Þá er ekki annað að sjá en fyrsti skóladagurinn hafi verið mjög erfiður. Sokkarnir úr skorðum, skyrtan krumpuð, bindið aflagað og hárgreiðslan algjörlega úr skorðum. Hún virðist þreytt og peysan situr illa sem og skólataskan. BBC skýrir frá þessu.

Jillian fannst myndirnar svo lýsandi fyrir góðan en erfiðan fyrsta skóladag að hún stóðst ekki mátið að birta þær á samfélagsmiðlum. Með þeim skrifaði hún að hún hefði ekki staðist mátið þegar hún sá Lucie koma gangandi heim að taka mynd og spyrja hana hvað þau hefðu gert í skólanum þennan fyrsta dag.

„Ekkert sérstakt.“

Var svarið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Í gær

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Í gær

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?