En sem betur fer er sjaldgæft að fólk grípi til jafn róttækra ráða og Lorie Morin, 47 ára, gerði nýlega. Hún var búin að fá sig fullsadda af hrotum unnusta síns, Brett Allgoods, og tók því skammbyssu og skaut hann í handarkrikann.
Að vonum urðu nágrannar varir við skothvellinn og hringdu í lögregluna. Þegar hún kom á vettvang fann hún Brett liggjandi í blóðpolli og emjaði hann af sársauka.
Lorie sagði að skot hefði hlaupið af fyrir slysni en lögreglan lagði ekki trúnað á sögu hennar. Hún varð síðan margsaga í yfirheyrslum.
Brett var fluttur með þyrlu á sjúkrahús. Hann mun ná bata en Lorie má eiga von á að dúsa í fangelsi um hríð.