Lýst hefur verið yfir lokasigri yfir hryðjuverkasamtökunum ISIS. Þar með er fjögurra ára barátta loks á enda. ISIS-liðar réðu eitt sinn yfir landsvæði sem náði yfir um þriðjung af Sýrlandi og Írak.
SDF í Sýrlandi lýstu yfir sigrinum á Twitter í dag. Mustafa Bali, fjölmiðlafulltrúi SDF, sagði á twitter í gær að barist yrði áfram á svæðinu Baghouz til að „afgreiða það sem eftir er af ISIS„
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna lýsti því yfir í gær að ISIS hefði ekkert svæði innan Sýrlands lengur til umráða.
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Patrick Shanahan, gaf Donald Trump Bandaríkjaforseta skýrslu um málið á meðan forsetinn flaug til Flórída. Þessu greindi talskona hvíta hússins, Sarah Sanders frá. Hún greindi frá því að vopnað lið ISIS hefði að fullu verið upprætt.
Baghouz var síðasta landsvæði ISIS og er staðsett á landamærum Íraks.