Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar hreinlætisfyrirtækisins Initial. Verstir eru vettlingar úr pólýester en skástir eru ullarvettlingar en þeir eru þó víðsfjarri því að vera hreinir.
Í umfjöllun Ekstra Bladet um málið er haft eftir Maria Brix Balle, hjá Initial, að fólk þvoi sér ekki nægilega oft um hendurnar og með þessari rannsókn sé verið að reyna að vekja athygli fólks á því.
Í rannsókninni var magn örvera á yfirborði vettlinga mælt. Ef fjöldi þeirra er minni en 200 á yfirborðinu er vettlingurinn hreinn. Ef fjöldinn er á bilinu 200 til 500 er hann miðlungshreinn en ef fjöldinn er yfir 500 er vettlingurinn skítugur.
50 vettlingar og hanskar voru rannsakaðir og var meðaltal örvera á yfirborði þeirra 1.040. Á klósettsetu eru að jafnaði 200 örverur miðað við fyrri rannsóknir Initial.
Það kom einna helst á óvart að vettlingarnir voru skítugri að innan en utan. Það er því vissara að þvo vettlinga oft.