Óhugnanlegt atvik átti sér stað í Stafangri í Noregi á dögunum þegar ungur maður varð fyrir tilefnislausri líkamsárás. Ungi maðurinn, 22 ára, var úti að skemmta sér með vinum sínum þegar annar ungur maður vatt sér upp að honum og gaf honum þungt högg í höfuðið. Félagi árásarmannsins tók atvikið upp á myndband.
Ungi maðurinn sem varð fyrir árásásinni áttaði sig ekki á því að hann hefði verið kýldur fyrr en viku síðar. Það var ekki fyrr en hann sá sjálfan sig í myndbandinu, sem hafði verið dreift á samfélagsmiðlum, að hann áttaði sig á því að hann hafði orðið fyrir líkamsárás.
Hann vaknaði daginn eftir með þungan og sáran höfuðverk, en taldi að vanlíðanina mætti rekja til drykkju kvöldið áður.
Málið hefur vakið talsverða athygli í Noregi sem og víðar. Þannig fjallaði breski vefmiðillinn Mirror um málið í dag.
Í frétt Mirror kemur fram að faðir piltsins hafi birt myndbandið um helgina í þeirri von að hægt væri að finna árásarmanninn og piltinn sem tók myndbandið upp hlæjandi. Það tók ekki langan tíma því nokkrum klukkustundum síðar hafði lögregla haft upp á tveimur mönnum sem grunaðir eru um verknaðinn. Þeir verða yfirheyrðir í vikunni.
Svo virðist vera sem árásin hafi verið með öllu tilefnislaus. Á myndbandinu sést árásarmaðurinn ganga upp að unga manninum fyrir utan verslun 7-Eleven í Stafangri meðan sá síðarnefndi skoðar símann sinn. Árásarmaðurinn virðist segja eitthvað við hann, áður en hann slær hann af miklu afli í andlitið. Árásarmaðurinn hleypur svo í burtu eins og sannur heigull.
Ekki þarf að fjölyrða um þær skelfilegu afleiðingar sem svona högg geta haft. Til eru mýmörg dæmi þess að einstaklingar hafi látist eða hlotið varanlegan heilaskaða eftir að hafa fengið hnefahögg í andlitið. Sem betur fer er talið að fórnarlamb þessarar árásar hafi ekki hlotið varanlegan skaða.
Faðir fórnarlambsins tjáði sig um málið í samtali við NRK í Noregi. Hann segist telja að tilgangur árásarinnar hafi verið einn, að útvega sjúkt „skemmtiefni“ fyrir einstaklinga sem sækja í ofbeldisfull myndbönd á netinu.
Hægt er að sjá myndbandið á vef Mirror hér undir. Rétt er að vara við efni þess: