Undanfarna þrjá daga hafa fyrirferðamikil mótmæli gegn loftslagsbreytingum átt sér stað í Lundúnum. Mótmælendur hafa beitt áhugaverðum brögðum til að koma sínu á framfæri en það allra nýjasta gekk út á að líma sig við lestir til að hafa áhrif á umferð.
Uppátækið hafði bæði mikil áhrif á lestarkerfi og bílaumferð borgarinnar og varð til þess að hátt í 300 manns hafa verið handteknir.
Mótmælendahópurinn sem kallar sig Extinction Rebellion bar líka ábyrgð á nektarmótmælum sem fóru fram á breska þinginu. Markmið hópsins er að fá þingið til að setja lög varðandi kolefnisútblástur og þau eru ekki hrædd við að komast í kast við lögin fyrir málstaðinn.
Mótmælin hafa hindrað um það bil hálfa milljón manns frá því að sinna sínum daglegu störfum. En sumir hafa bent á að til að stöðva hnattræna hlýnun sé besta ráðið ekki endilega að stöðva almenningssamgöngur, þar sem þær valda jú minni mengun en t.d. notkun á einkabílum.