Í samtali við The Sun sagði Ratner að á síðustu árum sínum hafi Jackson orðið sífellt örvæntingafyllri og leitað sér hjálpar vegna söknuðar eftir æskuárunum. Ratner þessi kom Jackson á bragðið með þau lyf sem drógu hann til dauða. Ratner þekkti vel til Jackson og var einkalæknir hans á tíunda áratugnum.
The Sun hefur eftir honum að líkamlegt ástand Jackson hafi ekki valdið honum áhyggjum heldur andlegt ástand hans. Þeir erfiðleikar sem Jackson glímdi við hafi orðið til í æsku vegna ofbeldis sem hann varð fyrir af hálfu ofbeldisfulls og ráðríks föðurs. Þetta hafi brotist út í sjúklegri þörf fyrir að skapa þá æsku sem hann aldrei átti. Ratner fékk vitneskju um þetta í löngum símtölum við Jackson að næturlagi en þá trúði poppgoðið honum fyrir þessu.
„Hann talaði látlaust um sakleysi æskunnar og hvernig hún glatast þegar maður verður fullorðinn. Hann sat fastur í þessu. Þetta var vandamál. Hann gat ekki losnað undan því. Ég reyndi, aðrir reyndu.“
Sagði Ratner sem lýsir þessu sem Peter Pan heilkenni, drengur sem vildi ekki verða fullorðinn, og að heimili hans, The Neverland Ranch, hafi verið hluti af því akkeri sem hélt honum föstum í þessari slæmu þráhyggju. Meðal þess sem Jackson sagði Ratner var að þegar hann var mjög ungur hafi hann verið neyddur til að æfa sig í kjallara fjölskyldunnar en út um gluggana sá hann önnur börn að leik, börn sem hann vildi gjarnan leika við. En það mátti hann ekki sagði faðir hans, hann átti að æfa sig, hann átti að verða stórstjarna.
Ratner sagði að mesta ánægja Jackson hafi verið að vera með börnum en það hafi verið gleði sem hafði alvarlegar afleiðingar og var völd að stærstu vandamálunum í lífi hans. Þrátt fyrir að hann hafi verið fullorðinn maður hafi hann viljað vera barn og hafi líkað betur við börn en fullorðna. En samband hans við börn var ekki heilbrigt sagði Ratner sem sagðist margoft hafa reynt að ræða þetta við Jackson til að fá hann til að skilja að það væri ekki viðeigandi hegðun hjá fullorðnum að umgangast börn á þennan hátt. Það var þessi þráhyggja sem er undirrót þeirra ásakana sem hafa veirð settar fram á hendur Jackson og hafa sett svartan blett á eftirmæli hans.