Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein og lögmenn hans hafa setið sveittir undanfarin misseri og freistað þess að semja við þær fjölmörgu konur sem sakað hafa Weinstein um kynferðisbrot.
Nafn Weinstein er jafnan beintengt umræðunni um MeToo-byltinguna enda stigu fjölmargar konur fram árið 2017 og lýstu ömurlegri framkomu hans í þeirra garð.
Wall Street Journal greinir frá því – og hefur eftir heimildarmönnum – að Weinstein hafi nú þegar samþykkt að greiða 44 milljónir dala gegn því að fórnarlömbin falli frá frekari málarekstri. 44 milljónir dala jafngilda 5,4 milljörðum króna en inni í þessari tölu er lögfræðikostnaður málsaðila.
Ekki liggur fyrir hvort samkomulagið feli í sér að Weinstein játi að hafa gerst brotlegur.
Þó að Weinstein geri ofangreint samkomulag kemur það ekki í veg fyrir málarekstur ákæruvaldsins gegn honum í New York vegna kynferðisbrota. Réttarhöldin eiga að byrja þann 9. september næstkomandi.