Í Maracaibo hafa þjófar brotist inn í El Cuadrado kirkjugarðinn og hafa innbrotin staðið yfir síðan síðasta haust. Þar stela þeir skreytingum og stundum hlutum af líkunum. Svo langt hefur verið gengið að gulltennur hafa verið rifnar úr líkum. Öryggisgæsla hefur verið hert í kirkjugarðinum og útfarartímum hefur verið breytt til að halda þjófum frá.
Eins og fyrr sagði er ástandið slæmt í Venesúela og einna verst er það í Maracaibo. Eins og annarsstaðar í landinu er mikill eða algjör skortur á helstu nauðsynjum. Borgin er sú næst stærsta í landinu og miðstöð olíuiðnaðarins sem var áður mikilvægasta tekjulind landsins. Samhliða versnandi efnahagsástandi byrjuðu íbúar borgarinnar að fara ránshendi um götur hennar og eyðileggja hús og fyrirtæki. Yfirvöld kenndu glæpagengjum um en hér var að sögn venjulegt fólk á ferð, örvæntingarfullt fólk sem átti hvorki í sig né á.