Búist er við því að hiti geti farið upp í 40 gráður víða í Evrópu í þessari viku og gætu hitatölur farið nærri metum í löndum eins og Frakklandi, Spáni, Ítalíu, Þýskalandi og Belgíu.
Íbúar og yfirvöld í Frakklandi hafa reynt að búa sig undir komandi hitabylgju. Þannig hafa viðskiptavinir keypt viftur í tonnavís á undanförnum dögum. Búið er að koma upp sérstökum kæliherbergjum í opinberum byggingum í París, sundlaugar verða opnar lengur en vanalega og þá hefur fleiri drykkjarbrunnum verið komið fyrir svo almenningur getur svalað þorsta sínum.
Þó það sé notalegt að vera í hitanum um stundarsakir getur hiti eins og verður í Evrópu í vikunni verið stórhættulegur. Í hitabylgju sem gekk yfir Frakkland í ágúst 2003 létust 15 þúsund manns, að því er talið er. Fyrir hádegi í dag var hitinn kominn í 30 gráður í París og er búist við því að hann fari í 37 gráður á fimmtudag og föstudag. Og ef spár ganga eftir verður varla ský á himni í frönsku höfuðborginni fyrr en í næstu viku.
Franska veðurstofan segir að hitatölur geti farið nærri metum í suðurhluta Frakklands í vikunni. Núverandi hitamet í júní í Frakklandi er 41,5 gráða í Narbonne í júní 2003.