Þremur baðströndum á Benidorm var lokað um helgina eftir að minnst sjö ferðamenn urðu fyrir barðinu á kvikindum sem líkjast marglyttum í sjónum á þessum vinsæla vinsæla ferðamannastað.
Um er að ræða tegund sem heitir Phisalia physalis á fræðimálinu og er sambýli holdýra sem ber hið skemmtilega nafn portúgalskt herskip á íslensku (e. Portuguese Man O’War).
Sjö manns leituðu aðstoðar á sjúkrahúsi en þó er talið að meiðslin þeirra hafi verið minniháttar. Kvikindin fundust svo í sjónum úti fyrir þremur ströndum og var þeim lokað í kjölfarið.
Holdýrin geta gefið frá sér eitur sem eru banvæn fyrir lítil sjávardýr en sjaldnast hættuleg fyrir fólk. Þó geta þau verið varasöm fyrir börn, gamalmenni og þá sem eru með ofnæmi fyrir eitrinu.