Sú hætta er fyrir hendi að hinir ríku muni eiga möguleika á að borga sig frá ýmsum vandamálum sem tengjast hlýnun jarðar á meðan að hinir fátæku verði látnir bera þungann af afleiðingum loftslagsbreytinganna.
Þannig gæti ákveðin „loftslagsaðskilnaðarstefna“ gert vart við sig á næstu árum og áratugum. Þetta er mat Philip Alston, sérstaks fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í mannréttindum og málefnum fátækra. Sjónarmið hans koma fram í skýrslu sem lögð verður fyrir mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í vikunni.
Vefútgáfa breska blaðsins Guardian fjallar um þetta og vísar í skýrsluna.
Alston er sagður mjög gagnrýninn á þær leiðir sem Sameinuðu þjóðirnar, ríki heimsins og einkafyrirtæki til að mynda hafa farið á undanförnum árum. Segir hann raunverulega hættu á því að „mannréttindi muni ekki lifa þá umrótartíma“ sem eru fram undan.
Alston gefur mörgum á baukinn í skýrslu sinni. Donald Trump Bandaríkjaforseti er einn þeirra en hann er harðlega gagnrýndur fyrir að reyna markvisst að þagga niður í vísindamönnum sem varað hafa við afleiðingum loftslagsbreytinga. Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, fær einnig sinn skerf af gagnrýni en Bolsonaro hefur sagst ætla að nýta Amazon-regnskóginn í ríkari mæli undir námuvinnslu.
Í skýrslunni segir hann að loftslagsbreytingar ógni nú þeim framförum sem hafa átt sér stað í þróunarmálum undanfarin 50 ár eða svo. Þá segir hann, miðað við stöðuna í dag, að þróunarríkin muni bera 75 prósent kostnaðar vegna loftslagsbreytinga þrátt fyrir að þau beri aðeins ábyrgð á 10 prósentum útblásturs koltvísýrings.