Jennifer hafði einfalda skýringu á þessu þegar lögreglumenn ræddu við hana. Hún var að þetta væri til að sundlaugin myndi ekki fjúka. Þetta kemur fram í Twitterfærslu lögreglunnar.
Það var árvökull borgari sem tilkynnti lögreglunni um akstur Jennifer með dæturnar á þakinu. Lögreglan stöðvaði akstur hennar á fjölförnum vegi. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að Jennifer hafi ekið með sundlaugina heim til vina sinna til að láta blása hana upp. Síðan hafi hún látið dæturnar sitja í tómri sundlauginni á heimleiðinni svo hún myndi ekki fjúka af þakinu. Dæturnar eru 8 og 16 ára.
Jennifer var kærð fyrir að stofna lífi dætra sinna í hættu og vítavert framferði.