fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Kappát endaði með ósköpum

Ritstjórn Pressunnar
Fimmtudaginn 15. ágúst 2019 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dana Hutchings, 41 árs Bandaríkjamaður, lést þegar hann tók þátt í kappátskeppni í Fresno á dögunum. Kappátið fór fram fyrir heimaleik hafnaboltaliðsins Fresno Grizzlies og áttu keppendur að borða fylltar maískökur, eða taco, á sem skemmstum tíma.

Sjö mínútum eftir að keppnin hófst hneig Dana þar sem maturinn stóð í honum. Áhorfendur og aðstandendur kappátsins reyndu að koma Dana til bjargar en allt kom fyrir ekki. Hann var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi við komuna þangað.

Matthew Boylen, áhorfandi sem varð vitni að atvikinu, segir að Dana hafi borðað allt of hratt. „Hann tróð þessu bara ofan í sig án þess að tyggja. Það var eins og hann hefði aldrei borðað áður.“

Í yfirlýsingu frá Fresno Grizzlies, sem AP vitnar til, kemur fram að kappát af þessu tagi verði ekki aftur á dagskrá fyrir leiki liðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana
Pressan
Í gær

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Við fórum heim til hans eftir stefnumótið – Síðan festist typpið hans í teinunum mínum

Við fórum heim til hans eftir stefnumótið – Síðan festist typpið hans í teinunum mínum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Önnur óhugnanleg hnífaárás í Sydney í morgun – Stunginn í beinni útsendingu

Önnur óhugnanleg hnífaárás í Sydney í morgun – Stunginn í beinni útsendingu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?