Ekkert saknæmt virðist hafa verið andlát hinnar fimmtán ára Noru Quiorin sem fannst látin í skóglendi í Malasíu á þriðjudag. Nora, sem var bresk, var á ferðalagi með fjölskyldu sinni og dvaldi á afskekktu náttúruverndarsvæði þegar hún hvarf skyndilega þann 4. ágúst síðastliðinn.
Ellefu dagar eru síðan foreldrar hennar tilkynntu um hvarf hennar. Hún var ekki inni í herberginu sínu eins og þeir töldu og var glugginn í herberginu opinn. Foreldrar hennar töldu útilokað að hún hefði farið sjálfviljug og töldu að einhver hefði numið hana á brott.
Nú telur lögregla hins vegar að Nora hafi yfirgefið híbýli fjölskyldunnar sjálfviljug. Hún hafi villst í skóginum, verið á flakki um hann í allt að viku áður en hún lést. Krufning leiddi í ljós að hún hafði ekki borðað lengi og líklega látist af völdum innvortis blæðinga sem rekja má til hungurs og streitu.
Krufning leiddi enn fremur í ljós að Nora, sem glímdi við þroskaskerðingu, hafði ekki orðið fyrir ofbeldi áður en hún lést. Engir áverkar voru á líki hennar. Lögregla taldi í fyrstu að Noru hefði verið ráðinn bani, meðal annars í ljósi þess að hún var nakin þegar hún fannst.
Lögregla kynnti niðurstöður krufningarinnar á blaðamannafundi sem haldinn var vegna málsins í morgun en málið hefur vakið mikla athygli í breskum fjölmiðlum.