Loftsteinninn, sem kallast 2019 OU1, er um það bil 160 metrar að þvermáli. Hann ferðast, samkvæmt bandarísku geimferðastofnuninni NASA, um 13 kílómetra á sekúndu.
Samkvæmt Ole J. Knudsen hjá eðlis- og stjörnufræðistofnun háskólans í Árósum, getur það haft í för með sér mikla eyðileggingu lendi loftsteinninn á jörðinni.
Það lítur þó ekki út fyrir að jarðarbúar þurfi að hafa neinar áhyggjur í þetta sinn. NASA gerir ráð fyrir því að loftsteinninn muni fara fram hjá jörðinni í um milljón kílómetra fjarlægð hinn 28. ágúst. Til samanburðar er tunglið í 384.000 kílómetra fjarlægð frá jörðinni.