Á föstudaginn birti Musk stutt tíst sem fylgjendur hans á Twitter tóku auðvitað eftir.
„Nuke Mars!“ (Sprengjum kjarnorkusprengjur á Mars)
Nuke Mars!
— Elon Musk (@elonmusk) August 16, 2019
Skrifaði hann. Þetta virðist eflaust vera klikkuð og tilgangslaus hugmynd í margra augum en á bak við þessi orð er ákveðinn hugsun. Í viðtali við bandaríska spjallþáttastjórnandann Stephen Colbert fyrir fjórum árum sagði Musk að hann teldi Mars vera plánetu sem væri hægt að „laga“ svo mannkynið gæti búið þar. Það eina sem þyrfti til væri að sprengja kjarnorkusprengjur á plánetunni.
Ástæðan er að hans sögn að við þessar sprengingar losni um koltvísýring sem er undir yfirborði plánetunnar. Það mun svo að hans sögn með tímanum valda því að til verður andrúmsloft sem mun síðan gera mönnum kleift að búa á Mars.
En sérfræðingar á þessu sviði eru ekki allir sammála Musk. Vísindamenn hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA segja að samkvæmt útreikningum þeirra gangi þetta ekki upp. Þrátt fyrir að það muni losa um koltvísýring að sprengja kjarnorkusprengjur á Mars þá dugi það engan veginn til að ná þeim áhrifum sem sóst sé eftir. Núna inniheldur andrúmsloftið á Mars aðeins sex prósent af því magni koltvísýrings sem er í andrúmsloftinu hér á jörðinni. Með því að sprengja kjarnorkusprengjur á Mars væri hægt að koma hlutfallinu upp í sjö prósent segja vísindamenn hjá NASA svo það virðist vera til lítils að sprengja kjarnorkusprengjur á Mars.