fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Hver er vondi kallinn?

Ritstjórn Pressunnar
Fimmtudaginn 17. janúar 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elín Björg Ragnarsdóttir, lögmaður og  fv. framkvæmdastjóri Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda, skrifar grein í Morgunblaðið sem vakti mikla athygli á Kaffistofunni í morgun. Þar talar hún um að Helgi Seljan á RÚV hafi tekið við sig viðtal á fölskum forsendum. Hún hafi í janúar 2012 rætt við hann um sam­keppn­is­lega mis­mun­un í inn­lendri fisk­vinnslu og nauðsyn aðskilnaðar veiða og vinnslu.

„Þegar leið á viðtalið fjallaði ég einnig lít­il­lega um mögu­leika fyr­ir­tækja sem hefðu alla virðiskeðjuna á eig­in hendi til að taka arð af auðlind­inni út í er­lendu fyr­ir­tæki. Tók ég skýrt fram að slíkt fyr­ir­komu­lag væri lög­legt og ef menn vildu breyta þess­um leik­regl­um yrði að breyta lög­gjöf­inni. Ég gagn­rýndi því lög­gjöf­ina en ekki eitt ein­asta fyr­ir­tæki sem nýtti sér þessa glufu, þrátt fyr­ir að Helgi Selj­an hefði ít­rekað reynt að fá mig til að nefna eitt eða fleiri af stóru út­gerðarfyr­ir­tækj­un­um,“ segir Elín.

Síðan hafi viðtalið ekki birst og hún haldið að því hafi verið slaufað. Síðan í lok mars hafi hún séð sjálfa sig tala um möguleika fyrirtækja til að taka út arð í er­lendu fyr­ir­tæki í tengslum við húsleit Seðlabankans, Tollstjóra og Sérstaks saksóknara á skrifstofum Samherja.

RÚV hafði eftir Elínu árið 2012:

„Eins og við sjáum oft getur fyrirtækið líka átt erlent sölufyrirtæki og selt áfram á lágmarksverði frá fiskvinnslunni yfir í erlenda fyrirtækið – sölufyrirtækið, og tekið út arðinn af allri greininni út í erlenda fyrirtækinu. Og hvort menn eru að leika þennan leik læt ég ósagt en allavega möguleikinn er þarna til staðar. Og auðvitað ættu menn að skoða þetta.“

Elín segir að hún hafi verið slegin vegna þessa og hvorki Páll Magnússon útvarpsstjóri né Kastljós hafi svarað tölvupóstum frá henni.

„Þarna mis­notaði Kast­jós gróf­lega viðtal við mig, fleygði mér inn í harka­lega sam­fé­lagsum­ræðu án þess að ég hefði hug­mynd um það fyrr en skaðinn var skeður. Þurfti ég að auki að sæta því næstu vik­ur og mánuði að heyra glós­ur um að ég hefði bein­lín­is verið upp­hafsmaður að mál­inu með því að koma á fram­færi upp­lýs­ing­um sem leiddu til rann­sókn­ar á Sam­herja o.fl.“

Segir hún einnig að þú þegar umræðan um Seðlabankann og Samherja sé aftur komin af stað þá hafi aftur blossað upp umræðu að aðkomu sína að þessu máli, vill hún því fá síðbúna afsökunarbeiðni frá RÚV.

Einn molakaffisötrari spurði hver væri eiginlega vondi kallinn í þessu.

RÚV? Sem vissulega hefði mátt taka fram að Elín hefði ekki verið að tala um Samherja eða húsleitina.

Eða hinir? Þeir sem komu með glósurnar, sökuðu Elínu um að vera upphafsmaður málsins og sneru við henni baki.

Það kann að vera að Elín hefði ekki treyst sér til að leita til annarra fjölmiðla á sínum tíma til að koma þeim skilaboðum á framfæri að RÚV hefði tekið orð sín úr samhengi. Lítið við því að gera núna.

En. Það er hins vegar hægt að opna umræðuna um það að einhver megi ekki segja neitt, ekki einu sinni úr samhengi, um valdamikla aðila án þess að fá að heyra háðsglósur um sig og fá að upplifa útskúfun. Það er öllu alvarlegra mál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433
Fyrir 13 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa

Sjáðu markið: Hólmar kom Val yfir eftir frábæra hornspyrnu Gylfa
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Eyjan
Fyrir 17 klukkutímum

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands