Það eru ekki margar laxveiðiár á lausu þetta haustið en allavega ein og það er Krossá á Skarðsströnd sem Hreggnasi hefur verið með á leigu í nokkur ár.
,,Við erum ekki að koma með tilboð í ána,“ sagði Jón Þór Júlíusson hjá Hreggnasa en áin er laus frá næsta ári og til 2021. Fluga og maðkur er leyfður í ánni en maðkurinn á ákveðnum tímum sumar.
Mynd. Hlynur Snær Sæmundsson með laxa úr Krossá á Skarðsströnd fyrir í sumar. En áin er til leigu. Mynd SK