,,Það er rétt að maður getur varla beðið eftir að rjúpnaveiðin byrji fyrir alvöru,“ sagði Reynir M. Sigmundsson er við spurðum hann um rjúpnaveiðina sem fram undan er en fyrsti veiðidagurinn er á föstudaginn kemur. Og veiðimenn bíða verulega spenntir.
,,Spennan er orðinn mikil en langtíma veðurspáin er ekkert sérstök en það á að detta í norðanátt seinni part vikunnar. Maður er búinn að bíða í eitt ár eftir þessu tíma. Svo er bara að vona að það verði bætt við fleiri dögum svo veiðimenn hafi meira val að velja sér daga á rjúpuna. En biðin styttist verulega,“ segir Reynir ennfremur.
Mynd. Flott veiði í fyrra.