,,Þetta er á hverju ári, alltaf einhverjir sem telja sig hafa rétt til að taka forskot á sæluna. Ég rakst á spor og skothylki á fyrsta degi í fyrra og líka í gær,“ segir veiðimaður sem lenti í því að einhver hafði þjófstartað fyrr en mátti fyrir rjúpnaveiðitímann og það voru miklu fleiri dæmi um það.
Og annar segir á skotveiðispjallinu um helgina. ,,Var í Bláfjöllum síðasta vetur, daginn fyrir rjúpnaveiðitímabil og skothvellir um allt.“
Og fleiri töku í sama streng. Í Skjaldbreiðinni voru spor eftir einhvern daginn eftir og líka í Fljótdalsheiðinni, búið að keyra um allt.
Þetta gerist á hverjum degi og það að bændur séu að leita af fé daginn fyrir fyrir fyrsta rjúpnadag er auðvitað siðleysi og á alls ekki að eiga sér stað hjá siðum mönnum og styggja fuglinn fyrir veiðimönnum. Bara siðlaust.
Mynd. Rjúpnaveiðimenn mættir á veiðislóð og fjórhjól daginn áður, bara siðlaust. Mynd María Gunnarsdóttir.