,,Auðvitað ætlar maður á rjúpu um helgina en maður verður að skoða veðurspána vel áður en lagt er af stað. Samkvæmt veðurspám verður verður skásta veðrið á suðurlandinu þangað sem við ætlum. Spáin er hins vegar ekki góð hvað norðurlandið snertir,“ sagði veiðimaður sem ég hitti í veiðibúð í dag
Önnur helgi í rjúpu er runninn upp en spáin fyrir laugardaginn er alls ekki góð eða eins og veðurfræðingurinn sagði, ekki gott rjúpnaveður á stórum hluta landsins og á þá sérstaklega á Norður og Austurlandi. Eins gott að skoða veðurspána vel.
Mynd. Labbað eftir rjúpu á Holtavörðuheiðinni síðustu helgi með ágætum árangri. Mynd G.Bender