,,Ég er bara búinn að ná nokkrum rjúpum og þarf að fá fleiri fugla, verðurfarið hefur verið slæmt,“ sagði veiðimaður sem við ræddum við í vikunni. Spáin um næstu helgi er hagstæð, sérstaklega fyrir norðan, mjög hlýtt, rigningu og 10 til 12 stiga hita.
Veðurspáin næstu um helgi er í raun með ólíkindum miðað við árstíma. Ég veit um marga sem ætla að fara á fjall. Menn eru að reyna að ná sér í jólamatinn. Við Sigurjón fórum um síðustu helgi og fengum nokkrar rjúpur, þetta er allt að koma,“ sagði Jógvan Hansen sem hefur farið til rjúpna tvær helgar.
Mynd. Kíkt eftir fugli á Holtavörðuheiðinni síðasta laugardag. Mynd G.Bender