fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Opið hús fyrir unga veiðimenn

Gunnar Bender
Þriðjudaginn 29. janúar 2019 13:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimmtudaginn 31.janúar næstkomandi klukkan 19.30 mun Stangveiðifélag Reykjavíkur ásamt samfélagsmiðlahópnum Villimenn halda opið hús fyrir unga veiðimenn/konur (14-25.ára).

Þessi skemmtun verður haldin í húsakynnum Stangveiðifélagsins, á Rafstöðvavegi 14, og verða léttar veitingar í boði. Kynnt verða nokkur frábær veiðisvæði í næsta nágrenni við Reykjavík, bæði í lax- og silungsveiði. Einnig munu nokkrir reyndir veiðimenn miðla reynslu sinni af því að taka fyrstu skrefin í stangveiði.

Villimenn munu kynna sýna starfsemi og sýna samantekt frá síðasta sumri svo menn verði enn spenntari fyrir komandi veiðitímabili. Haldið verður happdrætti í lok kvöldsins þar sem í boði eru glæsilegir vinningarnir frá Veiðihorninu, SVFR og Veiðikortinu. Meðal vinninga eru:

 Sage Foundation flugustöng

 Sage Spectrum fluguhjól

 Rio Single Handed Spey flugulína

 Veiðikort

 Ýmis veiðileyfi í bæði lax- og silungsveiði.

Ef þú ert, eða þekkir einhvern sem er, ungur/ung og hefur áhuga á veiði mælum við með þessum viðburði. Endilega látið unga og upprennandi veiðisnillinga vita af þessu.

Dagskrá:

Kl. 19.30: Húsið opnar

Kl. 20.00: Kynning á SVFR og Veiðikortinu

Kl. 20:15: Kynning á veiðisvæði Úlfarsá/Korpu

Kl. 20:40: Gissur Karl frá Veiðihorninu heldur kynningu á flugulínum og öðrum búnaði

Kl. 21.00: Stutt hlé

Kl. 21.10: Villimenn sýna myndir og myndbönd og segja frá sinni reynslu af veiðimennsku

Kl. 21.30: Happahylur, dregið í happdrætti

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Karl-remba KR-inga í Morgunblaðinu vekur nokkra athygli – Segja aðra borga betur

Karl-remba KR-inga í Morgunblaðinu vekur nokkra athygli – Segja aðra borga betur
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sancho klár í að snúa aftur til United ef þetta gerist

Sancho klár í að snúa aftur til United ef þetta gerist
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stórfurðuleg ákvörðun UEFA útskýrð

Stórfurðuleg ákvörðun UEFA útskýrð
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Er efstur á óskalista Manchester United fyrir sumarið

Er efstur á óskalista Manchester United fyrir sumarið