,,Ég hef ekki sett stöngina uppá hillu síðustu fjögur fimm árin. Hún hefur alltaf verið bara úti í skotti á bílnum. Það er svo gaman að fara og kasta flugunni aðeins,“ sagði veiðimaður sem ég hitti fyrir fáum dögum. Hann meinti þetta greinilega og sýndi mér stöngina í skottinu.
,,Það er svo gott að vera með hana í bílnum, stoppa og taka nokkur köst, þetta hefur verið erfitt eftir áramótin. Ég hef farið eina og eina ferð upp að Hólmsá og fengið nokkur högg. Útiveran er góð, prufa aðeins og sjá hvernig fiskurinn hagar sér yfir vetrartímann. Það er toppurinn og gefur manni heilan helling,“ sagði veiðimaðurinn ennfremur.
En hinir sem bíða eins og ég og fleiri, vitum að biðin er á enda. Það þarf hins vegar bara að hlýna miklu meira á næstunni. Helst sem allra allra fyrst.